Sýningin var 35 ára afmælissýning. Í umfjöllun um sýninguna í tímaritinu Hugur og Hönd (UMF0662) er sagt að „Á sýningunni var ætlunin að sýna þá miklu fjölbreytni sem einkennir félagsmenn Textílfélagsins og kynna notkun handverksins, bæði í hönnun og myndlist. Verkin sýndu þverskurð allt frá einstökum verkum til fjöldaframleiðslu og samstarfsverkefna. Aðferðir voru fjölbreyttar: vefnaður, þæfing, prjón, þrykk og blönduð tækni. Einnig var í umfölluninni sérstaklega getið um 6 heiðursfélaga textílfélagsins, en það voru þær Ásgerður Búadóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Guðrún Marínósdóttir, Hólmfríður Árnadóttir, Hulda Jósefsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir.
Þverskurður – Afmælissýning textílfélagsins
Veist þú meira um þessa sýningu?