Sýningin var haldin til að fagna 50 ára afmæli Kjarvalsstaða. Í fréttatilkynningu Listasafns Reykjavíkur segir meðal annars „Á sýningunni er að finna um tvöhundruð listaverk úr safneigninni og skiptist hún á milli Austur- og Vestursala á árinu 1973, þegar Kjarvalsstaðir voru vígðir. Um leið markar árið ákveðin straumhvörf í listasögunni hér á landi því þá eru að verða skil á milli línulegrar framvindu módernismans og margsögu framúrstefnutímabilsins. Á sýningunni eru verk eftir marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar, verk sem eru vel kunn, en einnig fjölmörg verk sem sjaldan hafa verið sýnd og munu koma mörgum á óvart“. Því miður var engin sýningarskrá/bók gefin út fyrir sýninguna og því erfitt um vik að nefna öll þau verk sem bregur fyrir á meðfylgjandi yfirlitsmyndum.
Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld
Veist þú meira um þessa sýningu?