Félagi húsgagnaarkitekta var falið að annast hlutdeild íslands í þessari alþjóðlegu listiðnaðarsýningu Verkin voru valin af sýningunni Húsgögn ’61 (SÝN012) af þriggja manna dómnefns sem í sátu þeir Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt, Leifur Kaldal grullsmiður og Kjartan Á Kjartansson húsgagnaarkitekt. Þar voru einhver af verkum Ásgerðar valin, og sjást tvö þeirra á ljósmyndum sem birtust í íslenskum dagblöðum. Fleiri ljósmyndir frá íslenska sýningarsalnum væru vel þegnar og/eða gögn frá dómnefndinni. Einnig má nefna að stóllinn Höfðingi, hannaður af Gunnari H Guðmundssyni hlaut gullverðlaun sýningarinnar, og hefur sá stóll nýlega (2025) verið settur í framleiðslu af Epal.