Sýningin leit yfir strangflatartímabil sjötta áratugsins í íslenskri myndlist, svipað og sýninging á Listasafni Íslands gerði 1998 (SÝN091). Á báðum þessum sýningum var sama verk Ásgerðar sýnt (Vefnaður II, ÁB021), en hér var einnig verkið Vefnaður I (ÁB020) sýnt. Aðalsteinn Ingólfsson fjallaði ýtarlega (UMF0972) um sýninguna, og bókina „Abstrakt geómetría á Ísland 1950-1960“ (UMF 0794) sem var gefin út í sambandi við sýninguna, kosti og galla. Eitt sem vafðist fyrir Aðalsteini var sá mikli munur sem var á innihaldi sýningarinnar og bókarinnar. Hvað varðar verk Ásgerðar, þá eru önnur verk sýnd í bókinni en á sýningunni, og um þau segir Aðalsteinn „Að vísu má setja fyrirvara við birtingu nokkurra verka eftir Nínu Tryggvadóttur, Gerði Helgadóttur og Ásgerði Búadóttur í þessu samhengi, þau verk virðast ýmist vera hluti af aðdraganda eða eftirmála strangflatalistar“. Staðreyndin er að Ásgerður óf engin strangflatarverk á sjötta áratugnum, heldur einungis sjö verk á stuttu ímabili (1961-62) sem tengjast strangflatarlistinni. Beinar línur og hreinir fletir henta auðvitað vefstólnum mjög vel, og mögulega nýtti hún sér það í stuttan tíma, áður en hún snéri aftur í eigin farveg og myndmál.