Þetta var önnur einkasýning Ásgerðar, tveimur árum eftir Karfavogssýninguna (SÝN004). Augljóslega stígur Ásgerður nokkuð stórt skef í ferli sínum með þessari sýningu. Sýningin er mun viðameiri, með 18 verk, mörg hver mun stærri en hún hefur sýnt áður, og sýnd í þekktum sýningarsal, ekki bara í heimahúsi í Austurbænum. Bæði Valtýr Pétursson og Kurt Zier skrifa nokkuð jákvæða dóma um sýninguna og Valtýr nefnir líka að „Hún er þegar orðin þekkt fyrir vefnað sinn, og ástæðulaust að kynna hana lesendum blaðsins.“ Þarna verða líka þau tímamót í ferli Ásgerðar að Listasafn Íslands kaupir eitt verkanna (Glóð; ÁB028). Mörg verkanna sem sýnd voru í Bogasalnum eiga sér þekkta sýningarsögu. Seinna meir eignaðist Listasafn Íslands einnig verkið Sól í Siena (ÁB047), Hönnunarsafn Íslands eignaðist Vefnaður II (ÁB021) og Listasafn Háskóla Íslands eignaðist Þrenning (ÁB044) Hins vegar vantar upplýsingar um eigendur þriggja verka; Blátt lauf (ÁB040), Dökkt lauf (ÁB050) og Sitra (ÁB049), en það síðastnefnda er alls óþekkt, ekki einu sinni til á mynd. Allar upplýsingar/ljósmyndir eru því mjög vel þegnar.
Ásgerður Búadóttir Bogasal
Veist þú meira um þessa sýningu?