Þetta var mikil tímamótasýning, þar sem það besta af samtíma norrænni hönnun og listiðnaði var sýnt í hjarta Parísar. Þarna voru hlutir frá framleiðendum eins og Hadeland, Arabia, Gustavsberg, Boda, Ittala, Bing & Gröndal og Orrefors. Þarna voru verk eftir hönnuði og listamenn eins og Alvar Alto, Kaj Bojesen, Ingeborg Lundin, Erik Höglund, Stig Lindberg, Arne Jacobsen, Georg Jensen, Hans Wegner, Oiva Toikka, Kaj Frank, Timo Sarpaneva og Bruno Mathsson. Ísland sýndi vefnað eftir Júlíönu Sveinsdóttur, Ásgerði og Guðrúnu Jónasdóttur, stóla Sveins Kjarval og silfursmíði Ásdísar Thoroddsen og Jóhannesar Jóhannessonar, og prjónales frá Hannyrðasambandinu. Einnig voru hlutir frá Þjóðminjasafninu til sýnis, sem bendir til að ekki hafi verið um mjög auðugan garð að gresja hvað varðaði nútíma íslenskan listiðnað. Val á sýninguna var í tveimur skrefum: hvert land var með valnefnd, sem sendi ljósmyndir á samnorræna valnefnd sem hittist í Gautaborg og tók lokaákvörðun. Því eru flestar ljósmyndir sem hafa fundist ekki teknar á sýningunni heldur teknar á Íslandi í forvalinu, sem félagið Íslenzk listiðn sá um. Sýningarskráin getur ekki einstakra verka. Einungis hafa fundist tvær blaðaljósmyndir frá íslenska hluta sýningarinnar. Þar sést einungis eitt verk Ásgerðar (ÁB008). Mynd af öðru (ÁB005) er að finna í myndaalbúmi Louvre safnsins. Á lista flutningafyrirtækisins sem flutti muni til Parísar, eru fjögur verk Ásgerðar. Allar frekari upplýsingar og sérstaklega ljósmyndir eru vel þegnar.
Formes Scandinaves
Veist þú meira um þessa sýningu?